Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Umsjónakennari óskast

Auglýst er eftir grunnskólakennara / umsjónarkennara í 1. bekk í 100% starfshlutfall. Um er að ræða tímabundna stöðu vegna forfalla frá og með 1. febrúar eða eftir samkomulagi með möguleika á áframhaldandi ráðningu næsta skólaár.

Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Þekking, hæfni og áhugi á upplýsingatækni er mikilvæg ásamt þátttöku í skólaþróun

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
  • Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Reynsla af teymiskennslu kostur
  • Góð þekking á upplýsingatækni mikilvæg
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð færni í mannlegum samskiptum  
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Advertisement published18. January 2025
Application deadline26. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Heiðarstekkur 10, 800 Selfossi
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags