Hrunamannahreppur
Hrunamannahreppur
Hrunamannahreppur

Gefandi starf í fallegu umhverfi á Flúðum – leikskólakennarar óskast

Leikskólinn Undraland óskar eftir leikskólakennurum í fullt starf

Ertu metnaðarfull(ur) og brennur fyrir leikskólastarfi? Viltu vera hluti af skóla sem leggur áherslu á umhverfi, útinám og umhyggju?

Við leitum að leikskólakennurum sem vilja taka þátt í skapandi og uppbyggilegu starfi með börnum þar sem rækt er lögð við útinám og umhverfismennt og áhersla á virðingu fyrir börnum og að komið sé til móts við ólíkar þarfir þeirra.

Við í Undralandi leggjum mikla áherslu á virðingu fyrir börnum og að koma til móts við ólíkar þarfir þeirra. Hver einstaklingur skiptir máli, við vinnum með jákvæða nálgun þar sem umhyggja, stuðningur, hlýja og styrkleikar hvers barns eru í forgrunni. Þetta skólaár er unnið að innleiðingu á agastefnunni „jákvæðum aga“.

Í Undralandi eru rúmlega 50 börn á þremur deildum, yngsta deildin er nýflutt í sér húsnæði. Undraland er ört stækkandi skóli í einstöku umhverfi.

Við bjóðum:

  • Lifandi og skapandi vinnuumhverfi
  • Teymisvinnu og faglegt nám
  • Áherslu á útinám og umhverfismennt
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun skólastarfsins
  • Stuðning í starfi

Skóladagatal er samræmt skóladagatali Flúðaskóla sem vakið hefur athygli.
Fáist ekki fagmenntaðir einstaklingar til starfa verða leiðbeinendur ráðnir tímabundið.
Vakin er athygli á að stuðningur til náms í uppeldis og/eða kennslufræðum er í boði.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  •  Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða   aðra sambærilega menntun
  •  Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  •  Frumkvæði og metnaður í starfi
  •  Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  •  Reynsla í starfi með leikskólabörnum
  •  Virðing og áhugi á að vinna með börnum
  •  Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Fagmenntuðum starfsmönnum stendur til boða húsnæði gegn hagstæðri leigu. 

Skóladagatal leikskólans er að mestu samræmt skóladagatali grunnskólans á Flúðum.

Starfsmönnum sem stunda nám í leikskólakennarafræðum standa til boða styrkir á námstímanum. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir  Jóna Björg Jónsdóttir leikskólastjóri S: 4806620 /8983077 -- [email protected] Umsóknir með ferilskrá sendist á  [email protected] og/eða í gegnum www.alfred.is  ---   Umsóknarfrestur til 15. mars 2026.

Advertisement published6. May 2026
Application deadline15. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Akurgerði 1, 845 Flúðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags