Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt

Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði

Staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði er laus til umsóknar.

Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Skólastarfið er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".

Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  •  Vinnur náið með leikskólastjóra og sinnir ásamt honum daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins.
  • Er staðgengill  leikskólastjóra  í fjarveru  hans.
  • Tekur þátt í stefnumörkun skólans og gerð skólanámskrár.
  • Er faglegur leiðtogi og fyrirmynd  fyrir aðra starfsmenn þegar kemur að faglegu starfi.
  • Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum.
  • Tekur þátt í skýrslu- og áætlanagerð.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg.
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla.
  • Góð íslenskukunnátta
  • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Forystuhæfni og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Advertisement published5. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags