

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra stoðþjónustu í 100 % starf. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.
Víðistaðaskóli er teymiskennsluskóli með fjölbreytta kennsluhætti. Í skólanum eru 2-4 bekkjardeildir, mismunandi eftir árgöngum. Í upphafi skólaársins voru um 520 nemendur í skólanum.
Leiðarljós Víðistaðaskóla eru: Ábyrgð – Virðing – Vinátta og er skólastarfið í anda þeirra.
Í Víðistaðaskóla er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir framtíðina á lýðræðislegan hátt. Skólinn vinnur í anda lýðræðis og eru haldin sérstök þing þar sem ýmis mál eru rædd, þessi vinna er einnig tengd Barnasáttmálanum. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Lögð er áhersla á að rækta með nemendum umburðarlyndi, víðsýni og ábyrgð ásamt virðingu fyrir sjálfum sér og umhverfi sínu. Með því er lagður grundvöllur að sjálfstæðri hugsun nemenda og hæfni þeirra til samstarfs við aðra. Einnig er lögð áhersla á að veita þeim tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð og reglusemi sem stuðlar að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska svo nemendur geti nýtt þau tækifæri sem lífið býður upp á.
Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur og sem hefur þá sýn að skóli er fyrir alla. Ert þú tilbúin að finna leiðir til þess að koma til móts við börnin á þeirra forsendum? Ef svo er þá er þetta starf fyrir þig.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans www.vidistadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýrir daglegu starfi og kennir innan stoðþjónustu skólans ásamt því að sinna starfsmannahaldi þar eins og við á
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans að velferð nemenda
- Aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda með sérþarfir
- Undirbýr og stýrir samráðsfundum innan stoðþjónustu
- Sinnir skýrslugerð fyrir stoðþjónustuna
- Heldur utan um skimanir og greiningar og fylgir þeim eftir
- Ber ábyrgð á gerð og framkvæmd móttöku- og tilfærsluáætlana nemenda með sérþarfir
- Styður við starfsfólk stoðþjónustunnar og veitir faglega ráðgjöf
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Víðtæk kennslureynsla úr grunnskóla
- Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- eða kennslufræði
- Stjórnunarmenntun er kostur
- Þátttaka og reynsla af stjórnun af fjölbreyttu tagi, ekki síst úr grunnskóla
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, [email protected] og Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri [email protected].
Launakjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2026
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic



































