

Leiðtogi söluteymis - viltu hafa góð áhrif á samfélagið?
Viltu:
- Þróa þig sem leiðtoga í gegnum fjölbreyttar áskoranir
- Hafa mælanleg áhrif á samfélagið á hverjum degi
- Taka þátt í metnaðarfullu og framsæknu fyrirtæki á hraðri uppleið
- Eiga kost á að vera leiðandi í sölustarfsemi hérlendis
Þá gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig!
Við hjá Takk leitum að metnaðarfullum og drífandi leiðtoga sem vill taka lykilhlutverk í áframhaldandi þróun fyrirtækisins.
Í starfinu berðu ábyrgð á að þróa og stýra söluherferðum í vettvangssölu („face-to-face“ og „door-to-door“) á landsvísu í samstarfi við leiðandi almannaheillafélög. Áherslan er á uppbyggingu teymisins, ekki einungis viðhald.
Starfsemi
Takk er markaðsfyrirtæki sem vinnur með íslenskum almannaheillafélögum að því að gera heiminn að betri stað. Starf okkar einblínir á að skapa rými og stuðning fyrir almannaheillafélög í gegnum ráðgjöf, markaðssetningu, sölu og rekstur. Svo félögin geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: Að hjálpa þeim sem mest þurfa á því að halda.
Starfsumhverfi
Við setjum starfsánægju í efsta sæti og leggjum mikið upp úr öflugu félagslífi, samvinnu, sanngjörnum launakjörum, jafnrétti og sjálfstæði í starfi. Við sýnum þetta í verki og hefur það skilað okkur fjölda viðurkenninga fyrir framúrskarandi starfsánægju, ásamt vottun fyrir að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki (B Corp), eins og sjá má á vinnustaðasíðunni okkar.
- Leiða dagleg starfsemi og árangur söluteymis
- Leiða verkefni sem snúa að þróun teymis
- Straumlínulaga og bæta ferla teymis
- Þróa nýjar vörur, nálganir og söluleiðir
- Taka virkan þátt í stefnumótun og þróun fyrirtækisins
- Stuðla að þekkingarforskoti á sviði vettvangssölu á Íslandi
- Krafa:
- Framúrskarandi samskiptafærni og samvinnuhæfni
- Áhugi á samfélagsmálum og vilji til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið
- Kostur:
- Reynsla af sölustörfum með góðum árangri
- Reynsla af töflureiknum (Excel, Google Sheets) og/eða CRM kerfum
- Reynsla sem stjórnandi
- Reynsla af verkefnastjórnun eða vöruþróun
- Góð laun og réttlátt bónuskerfi sem hvetur
- Jákvætt vinnuumhverfi sem styður við og eflir
- Öflugt félagslíf sem styður við jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Greidd notkun á farsíma og heimaneti.
- Afmælisfrí til að njóta dagsins.
- Jöfnum framlag starfsfólks til almannaheillafélaga árlega.
- Meira hér
Icelandic
English










