Corus ehf
Corus ehf
Corus ehf

Launaráðgjafi í Kjarna

Corus leitar að reynslumiklum launaráðgjafa í þjónustu við viðskiptavini Kjarna. Kjarni er mannauðs- og launakerfi sem heldur utan um allt ferlið frá ráðningu til starfsloka. Launakerfið er veigamikill hluti af Kjarna og til þess að aðstoða okkar viðskiptavini í að nýta kerfið eins og best verður á kosið, höfum við frábært teymi ráðgjafa og forritara. Nú við viljum styrkja ráðgjafahópinn okkar enn frekar. Ef þú býrð yfir góðri þekkingu á sviði launavinnslu, ert tæknifær og vilt þróast í starfi þá gæti þetta starf verið kjörið fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þú munt leiða innleiðingar á Kjarna mannauðs- og launakerfi
  • Þú munt vinna náið með viðskiptavinum Kjarna í launahluta kerfisins, sem flestir eru sérfræðingar í launavinnslu
  • Þú munt veita ráðgjöf um virkni kerfisins og hjálpa viðskiptavinum að nýta kerfið að fullu
  • Þú munt taka þátt í að þróa kerfið áfram með okkur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Minnst þriggja ára reynsla af launavinnslu og launabókhaldi er skilyrði
  • Þekking á Kjarna eða öðrum sambærilegum launakerfum
  • Góð greiningarhæfni og geta til að leysa úr flóknum úrlausnarefnum
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tæknikunnátta og færni á Excel
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Góð samskiptahæfni og mikil þjónustulund
Fríðindi í starfi
  • Að vera hluti af frábæru teymi ráðgjafa í mannauðs- og launalausnum
  • Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki
  • Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf
  • Vinnustaður sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti
  • Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
  • Hvatning til að þróast í starfi og efla þekkingu 
Advertisement published22. April 2026
Application deadline6. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.Payroll processingPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags