
Grófargil ehf.
Grófargil er þjónustufyrirtæki sem veitir alla almenna bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Grófargil sérhæfir sig í verkefnum fyrir fjármála- og birgðasvið fyrirtækja.
Á skrifstofum þess á Akureyri og í Reykjavík er starfsfólk sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á sviðum bókhalds, launa, uppgjöra og vörukaupaskráninga.

Sérfræðingur í launum
Vegna aukinna verkefna leitum við að reyndum launafulltrúum í 100% starf hjá Grófargili ehf í starfsstöðvum okkar í Reykjavík og á Akureyri.
Grófargil er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í verkefnum fyrir fjármála- og birgðasvið fyrirtækja. Á skrifstofum þess er starfsfólk sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á þeim sviðum.
Um er að ræða krefjandi starf launafulltrúa fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina okkar.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Við bjóðum:
- Áhugavert og fjölbreytt starf
- Gott starfsumhverfi og sterka liðsheild
- Tækifæri til að þróast í starfi
- Sveigjanlegan vinnutíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útreikningur launa
- Afgreiðsla launatengdra gjalda
- Skráningar í launakerfi og utanumhald starfsmannaupplýsinga
- Samskipti við stofnanir s.s. skattayfirvöld og lífeyrissjóði
- Almennur stuðningur við mannauðsdeildir viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af launavinnslu er skilyrði
- Þekking á kjarasamningum æskileg
- Góð kunnátta í launakerfum t.d. Kjarna, DK, eða öðrum
- Nákvæmni, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
- Lipurð í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Þjálfun og endurmenntun
Advertisement published24. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Glerárgata 36, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)





