

Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú áhuga á rannsóknalækningum á klínískri lífefnafræðideild?
Við sækjumst eftir lækni sem hefur áhuga á að kynna sér rannsóknarlækningar, nánar til tekið á klínískri lífefnafræðideild, rannsóknarkjarna Landspítala.
Á rannsóknakjarna (klínísk lífefnafræði og blóðmeinafræði) við Hringbraut og í Fossvogi starfa um 150 einstaklingar sem sinna greiningu blóðmeina og lífefnafræðilegri greiningu sjúkdóma allan sólarhringinn. Starfshlutfall á klínískri lífefnafræðideild er 100% eða eftir samkomulagi og getur viðkomandi hafið störf sem fyrst.
Starfið er tímabundið í að minnsta kosti 6-12 mánuði eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða dagvinnu með sveigjanleika en einnig væri möguleiki á vöktum á lyflækningasviði ef áhugi er fyrir því.
Við rannsóknarlækningar starfa reyndir sérfræðilæknar ásamt öðrum læknum í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
- Þjálfun í rannsóknalækningum með þátttöku í greiningarannsóknum
- Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna
- Þátttaka í vaktþjónustu á lyflækningasviði
- Kennsla læknanema, lífeindafræðinema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á
- Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
- Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
- Íslenskt lækningaleyfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Icelandic



























































