

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á taugalækningadeild
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við skipulag og umsjón með útskrift sjúklinga á taugalækningadeild í Fossvogi.
Starfshlutfall er 50%. Um er að ræða dagvinnu á virkum dögum og möguleiki er á sveiganlegum vinnutíma sem hægt er að aðlaga eftir óskum starfsmanns. Starfið er laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á starfi í hærra starfshlutfalli á deildinni, t.d. í vaktavinnu á móti umsjón með útskriftum.
Taugalækningadeild þjónar sjúklingum með taugasjúkdóma og starfa þar um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra. Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Sigríði, deildarstjóra.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi .
Icelandic




























































