

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Hefur þú áhuga á að hjúkra einstaklingum með geð- og fíknisjúkdóma og að starfa í umhverfi þar sem lögð er áhersla á starfsþróun, fagmennsku, samvinnu og góðan starfsanda? Þá erum við að leita að þér.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að styrkja teymið okkar á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma 32A. Við bjóðum sveigjanlegt starfshlutfall og möguleika á að velja þær tegundir vakta sem henta best. Ráðning er frá 15. apríl 2026 eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða líflega deild þar sem enginn dagur er eins, hér hjúkrar þú og styður einstaklinga með tvíþættan vanda; alvarlega geðsjúkdóma og vímuefnavanda. Unnið er í öflugu þverfaglegu teymi þar sem meðal annars er unnið með batamiðaða nálgun, áhugahvetjandi samtal, skaðaminnkun og geðlæknisfræði svo eitthvað sé nefnt.
Hjúkrunarfræðingar sinna lykilhlutverki í meðferð, umönnun og framþróun á deildinni en starfsemin er í stöðugri framþróun og unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Góður starfsandi er á deildinni þar sem lögð er áhersla á samvinnu og góð samskipti þar sem allar raddir skipta máli.
Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma heyrir undir meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma en undir eininguna heyra einnig dagdeild (Teigur), göngudeild og afeitrunardeild ólögráða ungmenna.
Á deildinni eru mikil tækifæri til vaxtar í starfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð. Starf á deildinni hentar bæði reynslumiklum hjúkrunarfræðingi sem og hjúkrunarfræðingi sem er að stíga sín fyrstu skref í geðhjúkrun.
Hjá geðþjónustu Landspítala er möguleiki að sækja um sérhæft starfsþróunarár fyrir hjúkrunarfræðinga til að efla faglega framþróun og öryggi í starfi. Jafnframt er Landspítali með miðlægt starfsþróunarár fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga.
Ef þú hefur áhuga á að starfa á deild þar sem framlag þitt skiptir raunverulegu máli og þar sem þú færð bæði faglegar áskoranir og góðan stuðning, hvetjum við þig til að senda inn umsókn eða fyrirspurn. Við hlökkum til að heyra frá þér.
Icelandic
English




























































