Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands

Kerfisstjóri/sérfræðingur upplýsingatæknikerfa

Hefur þú góða þekkingu og reynslu af kerfis- og tæknimálum og langar að prófa nýjar áskoranir í flóknu og krefjandi umhverfi?

Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og traustan liðsfélaga í samhentan hóp sérfræðinga sem bera ábyrgð á kerfis- og tæknimálum á varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar, þar með talið rekstri, viðhaldi, uppsetningu og þróun á kerfis- og tæknibúnaði Atlantshafsbandalagsins (NATO) hér á landi.

Búnaðurinn samanstendur m.a. af stjórnstöðvar-, ratsjár-, fjarskipta-, samskipta- og kerfisbúnaði sem staðsettur er í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og á ratsjár- og fjarskiptastöðvum Atlantshafsbandalagsins hér á landi. Starfsstöð er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Starfið krefst m.a. skipulagðra og tilfallandi ferða út á ratsjárstöðvar á öllum tímum ársins.

Unnið er samkvæmt kröfum, stöðlum, reglum og leiðbeiningum Atlantshafsbandalagsins og fær viðkomandi viðeigandi þjálfun í þeim verkefnum bæði innanlands og erlendis. Um er að ræða dagvinnu ásamt tilfallandi verkefnum utan dagvinnutíma. Vegna viðbragðs utan dagvinnutíma er æskilegt að viðkomandi sé staðsettur innan 15 mínútna akstursfjarlægðar frá stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þátttaka í daglegum rekstri sérhæfðra stjórn-, hugbúnaðar og upplýsingatæknikerfa Atlantshafsbandalagsins
  • Reglubundnar uppfærslur á hug- og vélbúnaði
  • Stuðningur við notendur
  • Uppfærsla skjala, leiðbeininga og teikninga
  • Þátttaka í kerfis- og tæknisamstarfi Atlantshafsbandalagsins
  • Öryggismál
  • Önnur tengd verkefni


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. kerfisstjórnun, tölvunar- og/eða kerfisfræði
  • Reynsla af rekstri tölvukerfa, s.s. Windows (AD, EX, Group policies), VMware Virtual Infrastructure, Linux og SQL
  • Nám og/eða reynsla af rekstri flókinna netkerfa er kostur
  • Fagmennska, samskiptahæfni og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
  • Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi
  • Góð enskukunnátta
  • Ökuréttindi
  • Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Advertisement published7. November 2024
Application deadline2. December 2024
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags