Sensa ehf.
Sensa er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki með starfsstöðvar í tólf löndum sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum í upplýsingatækni. Hjá Sensa starfar reynslumikill hópur sérfræðinga með hátt þekkingarstig.
Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins eftir bestu getu.
Markmið Sensa er að vera ávallt í fararbroddi þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Áhersla er lögð á að starfsfólk styrki sig í þekkingu og menntun með ýmsu móti og geti vaxið á eigin forsendum.
Eigandi Sensa er norska fyrirtækið Crayon sem starfar í 46 löndum. Crayon býður ýmsar lausnir í upplýsingatækni og er Sensa virkur þátttakandi í þróun þeirra lausna og í þjónustu við fyrirtæki á alþjóðavettvangi.
Atlassian sérfræðingur
Viltu vinna við fjölbreytt og spennandi verkefni sem snúa að þjónustu við viðskiptavini okkar? Atlassian sérfræðingur vinnur í teymi Stafrænna lausna hjá Sensa. Við leitum að einstaklingi til að sinna verkefnum sem snúa að ráðgjöf, hönnun og tæknilegum útfærslum í Atlassian svítunni, þ.e. Jira og Assets. Við hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að tengja ferla sína við stafrænar umbætur ásamt því að veita ráðgjöf til að auka hagræðingu í rekstri og hámarka nýtingu tæknilegra auðlinda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þarfagreining og ráðgjöf til viðskiptavina
- Hönnun og aðstoð við innleiðingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af vinnu við Atlassian lausnir
- Rík þjónustulund, frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
- Lausnamiðuð hugsun og geta unnið sjálfstætt sem og í teymi
- Reynsla af ferlagreiningu er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Íþróttastyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti þar sem maturinn er eldaður frá grunni
- Sveigjanlegur vinnutími og möguleikar á fjarvinnu
Advertisement published15. November 2024
Application deadline8. December 2024
Language skills
English
Very goodRequired
Icelandic
Very goodRequired
Location
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Software Developer
Rapyd Europe hf.
Stapaskóli - Tölvuumsjónarmaður
Reykjanesbær
Software Engineer Intern
CCP Games
Sérfræðingur í stafrænni þróun
Ölgerðin
Vefforritari
Overcast ehf.
Software Engineer
CCP Games
Senior Software Engineer
CCP Games
Sérfræðingur í upplýsingatækni
KPMG á Íslandi
Gagnagæðasérfræðingur á Gagnasviði Hagstofunnar
Hagstofa Íslands
Kerfisstjóri/sérfræðingur upplýsingatæknikerfa
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingatæknistjóri / Director of ITO
Íslensk erfðagreining
Data Center Operations Technician
Geko