Grindavíkurbær
Grindavíkurbær
Grindavíkurbær

Kennarar óskast til starfa við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla

Nýr samrekinn leik- og grunnskóli í Grindavík leitar að kennurum fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða 100% stöður.

Lögð verður áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda þar sem fjölbreyttir kennsluhættir og vellíðan nemenda verða í fyrirrúmi. Læsi og leiðsagnarnám munu jafnframt skipa stóran sess í skólastarfinu.

Skólinn tekur til starfa 1. ágúst 2026 og gert verður ráð fyrir börnum og nemendum frá 12 mánaða aldri til 10. bekkjar. Ef þú vilt taka þátt í því spennandi verkefni að endurbyggja metnaðarfullt skólastarf í Grindavík, þá erum við að leita að þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja nám og kennslu nemenda
  • Leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms og þroska
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna og þverfaglegt samstarf
  • Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Sinna öðrum þeim verkefnum er varða menntun barna sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
  • Einlægur áhugi og metnaður á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Advertisement published15. May 2026
Application deadline31. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Type of work
Professions
Job Tags