
Grindavíkurbær
Í Grindavík er samhent og metnaðarfullt samfélag þar sem nálægð og samvinna einkenna daglegt líf. Á sama tíma stendur yfir uppbygging sem felur í sér einstakt tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í mótun framtíðar samfélagsins.
Hjá Grindavíkurbæ starfar öflugur hópur fólks þar sem fagmennska, samvinna og lausnamiðuð hugsun eru í forgrunni. Lögð er rík áhersla á að veita framúrskarandi þjónustu og skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og hafa raunveruleg áhrif.

Forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur
Grindavíkurbær auglýsir 75% starf forstöðumanns Bókasafns Grindavíkur laust til umsóknar. Um er að ræða fjölbreytt og skapandi starf þar sem áhersla er lögð á þjónustu við íbúa á öllum aldri, sérstaklega börn og ungmenni, ásamt virkri þátttöku í menningar- og samfélagsverkefnum sveitarfélagsins.
Bókasafn Grindavíkur er bæði almennings- og skólabókasafn og starfið byggir á hlutverki bókasafna samkvæmt bókasafnalögum nr. 150/2012. Forstöðumaður gegnir lykilhlutverki í að efla læsi, menningu, upplýsingamiðlun og samfélagslega þátttöku í Grindavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við notendur á öllum aldri með sérstaka áherslu á börn og ungmenni
- Umsjón með öflun, skráningu og miðlun safnkosts og fræðslugagna
- Skipulagning fræðsluverkefna, lestrarátaka og viðburða fyrir nemendur og almenning
- Þróun bókasafnsins sem vinalegs, öruggs og hvetjandi umhverfis
- Umsjón með opnun og starfsemi Kvikunnar menningarhúss
- Aðstoð við efnisvinnslu fyrir miðla Grindavíkurbæjar
- Virk þátttaka í menningar- og samfélagsverkefnum sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærileg menntun
- Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
- Geta til að miðla upplýsingum og vinna í teymi
- Vilji til að taka þátt í breytingum og þróunarvinnu
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Hreint sakavottorð
- Góð fyrirmynd í samskiptum og hegðun
Advertisement published15. May 2026
Application deadline31. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Type of work
Skills
Librarian
Professions
Job Tags
Other jobs (3)

