Fellaskóli
Fellaskóli
Fellaskóli

Kennari í tónmennt og / eða leiklist 1. ágúst 2026

Viltu kveikja neistann í skapandi skólastarfi? 🎶🎭

Fellaskóli leitar að öflugum kennara í tónmennt og/eða leiklist til að bætast í okkar líflega hóp. Starfshlutfall er u.þ.b. 40% en það er góður möguleiki á að auka við það fyrir rétta aðilann.

Í Fellaskóla leggjum við áherslu á að brjóta upp hefðir. Við vinnum mikið með það að tengja listir við málörvun og íslensku, og við elskum nýjar hugmyndir!

Af hverju Fellaskóli? Hjá okkur iðar allt af lífi. Nemendahópurinn er litríkur, hæfileikaríkur og talar fjölmörg tungumál – hér er heimurinn í einni skólastofu. Við trúum á skóla án aðgreiningar þar sem draumar nemenda fá að blómstra.

Við bjóðum upp á:

  • Frábæran starfsmannahóp og mikla starfsgleði.
  • Tækifæri til að móta þína eigin kennslu.
  • Metnaðarfullt og styðjandi vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þú kennir í skapandi smiðjum í 3.–6. bekk.
  • Þú færð frelsi til að flétta saman tónlist, leiklist og íslensku á nýstárlegan hátt.
  • Þú verður hluti af samheldnu teymi sem styður við bakið á hvert öðru. 
  • Kórstjórn (val)
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Við leitum að manneskju sem þorir að prófa nýja hluti og hefur brennandi áhuga á listum í námi.

  • Hvort sem þú ert faglærður kennari eða með sterkan listrænan bakgrunn, þá viljum við heyra í þér.

Advertisement published15. May 2026
Application deadline29. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags