Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Kennarar á unglingastig við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri

Leitað er að metnaðarfullum og öflugum kennurum í 100% stöður á unglingastig við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES) skólaárið 2026-2027.

Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Við skólann eru 136 nemendur, 70 á yngra stigi og 66 á eldra stigi. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti og góða samvinnu við nærumhverfið. BES leitast við að vera teymiskennslu og teymisvinnuskóli og er jafnframt í þróunarvinnu sem miðar m.a. að því að innleiða Jákvæðan aga í skólastarfið. BES er Erasmus+ skóli, vinnur skv. heilsueflandi gildum og vinnur markvisst gegn einelti. Þá er BES virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
  • Heldur utan um nám- og kennslu í viðkomandi grein
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf
  • Reynsla af teymiskennslu/vinnu í grunnskóla
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Advertisement published29. April 2026
Application deadline11. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags