

Deildarstjóri í Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús, nýlegir leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða deildarstjóra til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.
Sumarhús er fimm deilda skóli og gert ráð fyrir allt að 150 börnum á aldrinum 1-5 ára. Skólinn er á heilsubraut og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, með áherslu á næringu, hreyfing og sköpun þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls er í forgrunni. Markviss málörvun, leikurinn og lífsleikni eru einnig mikilvægir hlekkir í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling að uppbyggingu leikskólans.
Staðan er laus frá 10. ágúst 2026
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan skólans og stýrir deildarfundum
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
- Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
- Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
- Leyfisbréf leikskólakennara
- Kennslureynsla á leikskólastigi
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
- Fagleg framkoma
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Icelandic










