Hagaskóli
Hagaskóli

Dönskukennari í Hagaskóla með umsjón

Hagaskóli leitar að dönskukennara fyrir skólárið 2026-2027. Um er að ræða fullt starf. Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, samvinnu, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar.

Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum. Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir kennslu auk annarra gagna er málið varðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vera umsjónarkennari í einum bekk.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara.
  • Kennaramenntun með áherslu á dönsku.
  • Brennandi áhugi og þekking á hugmyndum leiðsagnarnáms.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
Advertisement published29. April 2026
Application deadline20. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
DanishDanish
Required
Advanced
Location
Fornhagi 1 Hagaskóli , 107 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags