

Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Hlutastörf með námi í endurhæfingarþjónustu og/ eða sumarstörf
Endurhæfingarþjónusta Landspítala leitar eftir áhugasömum hjúkrunarnemum á 1.-4. ári. Þjónustan samanstendur af spennandi vettvöngum eins og endurhæfingardeild Grensási þar sem einstaklingum er veittur stuðningur til að komast aftur út í lífið eftir erfið áföll ásamt endurhæfingardeildum á Landakoti þar sem lögð er áhersla á endurhæfingu aldraðra með því markmiði að endurheimta færni, auka sjálfstæði og bæta lífsgæði.
Störfin veita einstakt tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu í endurhæfingarhjúkrun í þverfaglegu og styðjandi umhverfi.
Í boði eru störf á eftirfarandi starfseiningum:
Ef ósk er um tiltekna deild vinsamlegast tilgreinið í reitinn ¿Annað¿ með stuttum rökstuðningi.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Störfin eru laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
Icelandic




























































