

Hjúkrunar og læknanemar óskast í sumar
Grundarheimilin leita að hjúkrunar- og læknanemum í sumarafleysingar
Grund, Mörk og Ás eru hjúkrunarheimili sem leggja áherslu á einstaklingsmiðaða umönnun, fagmennsku og hlýlegt umhverfi.
Markmið okkar er að tryggja að íbúarnir njóti umönnunar sem byggir á virðingu, umhyggju og öryggi, en jafnframt að skapa vinnustað þar sem starfsfólk getur vaxið faglega.
Við bjóðum hjúkrunar- og læknanemum tækifæri til að taka þátt í þessu mikilvæga starfi með leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga í þverfaglegu teymi.
Veita hjúkrunarmeðferð með handleiðslu og stuðningi reyndra hjúkrunarfræðinga.
Skrá nákvæma meðferð og tryggja eftirlit með lyfjagjöfum í samræmi við verklagsreglur.
Sinna einstaklingsmiðaðri umönnun og stuðla að vellíðan íbúa.
Vinna í samvinnu við þverfaglegt teymi og taka þátt í daglegum verkefnum sem tengjast rekstri hjúkrunarheimilis.
Vera nemi í hjúkrunar- eða læknisfræði og hafa lokið að lágmarki einu ári í námi.
Góð samskiptahæfni og geta unnið í teymi þar sem traust og samvinna eru í fyrirrúmi.
Sjálfstæði, fagmennska og vilji til að axla ábyrgð í starfi.
Áhugi á að þróa færni sína og taka þátt í veitingu framúrskarandi þjónustu.
Icelandic










