Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsuvernd í framhaldsskóla

Við leitum að drífandi og jákvæðum hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á að efla heilbrigði ungmenna í framhaldsskólum og stuðla að vellíðan þeirra. Um er að ræða 40 -100% tímabundið starf til eins árs, frá og með 15. ágúst 2025.


Hjúkrunarfræðingar sem starfa í framhaldsskólum stuðla að heilbrigði ungmenna þar sem áhersla er lögð á vegvísi um heilbrigðiskerfið, fræðslu og ráðgjöf vegna geðheilbrigðis, kynheilbrigðis, almenns heilbrigðis og félagslegs vanda.


Heilsubrú er eining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem hefur það markmið að efla og samræma þverfaglega þjónustu innan HH. Þar er boðið upp á margskonar fræðslu og ráðgjöf til að mæta ýmsum heilsuvanda en einnig til almennrar heilsueflingar. Jafnframt eru vistuð þar verkefni eins og heilsuvernd barna og ungmenna í framhalds- og grunnskólum.


Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðtöl um heilsu og líðan ungmenna
  • Fræðsla, ráðgjöf og heilsuefling 
  • Einstaklingsráðgjöf
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu heilsuverndar í framhaldskólum í samvinnu við annað starfsfólk skóla
  • Þverfaglegt samstarf við aðra fagaðila 
  • Samstarf við foreldra og aðstandendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsreynsla við hjúkrun skilyrði  
  • Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum æskileg 
  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki 
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð 
  • Jákvætt viðhorf  
  • Mjög góð íslenskukunnátta 
  • Góð enskukunnátta 
  • Góð almenn tölvukunnátta  
Advertisement published19. June 2025
Application deadline30. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags