Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur Færni-og heilsumatsnefnd HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að hjúkrunarfræðingi í tímabundið 80-100% starf í eitt ár hjá færni- og heilsumatsnefnd. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Nefndin sinnir faglegu og einstaklingsbundnu mati þar sem metnar eru félagslegar aðstæður, heilsufar og andlegt ástand auk þess sem metin er færni í athöfnum daglegs lífs og hvort viðeigandi úrræði séu fullreynd áður en til langtíma búsetu kemur.

Nefndin starfar skv. reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma nr. 466/2012, https://island.is/reglugerdir/nr/0466-2012

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og úrvinnsla umsókna um bæði varanlega búsetu og hvíldarinnlagnir á hjúkrunarheimili. 
  • Gagnaöflun og skráning upplýsinga.
  • Upplýsingamiðlun, ráðgjöf og leiðbeiningar til umsækjenda og fagaðila.
  • Samstarf við nefndarmenn á vikulegum fundum.
  • Samskipti við stofnanir og fagaðila.
  • Umsjón með biðlistum eftir hjúkrunarrýmum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð yfirsýn og þekking á heilbrigðiskerfinu og þeim úrræðum og aðstoð sem einstaklingum stendur til boða úti í samfélaginu.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Lausnamiðuð hugsun og sveigjanleiki
  • Mjög góð tölvufærni, s.s. í word og exel
  • íslenskukunnátta skilyrði
Advertisement published20. June 2025
Application deadline30. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags