Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Málastjóri - Geðheilsuteymi HH austur

Ertu metnaðarfullur málastjóri sem brennur fyrir bættri geðheilsu og velferð fólks? Geðheilsuteymi HH austur leitar að öflugum og samhentum liðsfélaga í 100% ótímabundið starf. Hér gefst tækifæri til að hafa áhrif á líf fólks með því að efla virkni, sjálfstæði og lífsgæði skjólstæðinga í nánu samstarfi við samheldið og þverfaglegt teymi.

Við leitum að einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum og getur hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Teymið er staðsett að Stórhöfða 23 og í því starfar fjölbreyttur hópur fagfólks: hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sálfræðingar, þroskaþjálfi, geðsjúkraliði, notendafulltrúi, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingar og skrifstofustjóri. Lögð er rík áhersla á jákvæðan starfsanda og faglegan stuðning.

Nánari upplýsingar má finna inni á (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna málastjórn, þ.e. hafa umsjón og yfirlit yfir meðferð notendahóps
  • Vinna í þverfaglegu meðferðarteymi 
  • Samþætta meðferð og leita leiða til að bæta líðan skjólstæðinga 
  • Setja fram meðferðaráætlun og sinna endurmati 
  • Sinna ráðgjöf og fræðslu til notenda og aðstandenda
  • Viðtöl á starfsstöð og/eða í heimavitjunum
  • Námskeiðahald
  • Skipulagning og þátttaka í fjölskyldufundum
  • Samstarf við aðra fagaðila innan og utan heilsugæslunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt leyfi eða starfsréttindi á félags- eða heilbrigðissviði
  • Viðbótarnám eða sérnám, er nýtist í starfi, æskilegt
  • Reynsla af vinnu með einstaklinga með geðraskanir æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Klínísk reynsla innan geðheilbrigðiskerfisins s.l. 5 ár æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, framsýni og metnaður í starfi skilyrði
  • Frumkvæði í starfi og góðir skipulagshæfileikar skilyrði 
  • Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Reynsla af fræðslu- og námskeiðahaldi æskileg
  • Hæfni og áhugi á verkefnavinnu skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Advertisement published13. June 2025
Application deadline27. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Stórhöfði 23, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags