Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa hjá Heilsuvernd.

Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.

Heilsuvernd óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga í sitt öfluga teymi tengt heilsu- og vinnuverndarþjónustu. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en vilja um leið vera hluti af sterku teymi.

Um er að ræða stöðugildi þar sem starfshlutfall getur verið á bilinu 75-95% þar sem unnið er á dagvinnutíma og er starfsaðstaða í Urðarhvarfi í Kópavogi.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heilsufarsráðgjöf til einstaklinga
  • Heilsufarsskoðanir
  • Bólusetningar
  • Fræðsla
  • Forvarnir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
  • Þjónustulund og gott viðmót
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og ánægja af samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta er æskileg
Advertisement published12. June 2025
Application deadline23. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags