
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Héraðsskjalavörður á Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar
Auglýst er laust til umsóknar starf héraðsskjalavarðar á Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar. Um er að ræða 100% starf. Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar var stofnað árið 1961 og er eitt 18 héraðsskjalasöfnun á Íslandi og lýtur faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands. Safnið er ekki sjálfstæð stofnun innan sveitarfélagsins heldur telst hluti af rekstri Safnahúss Borgarfjarðar.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem krefst sjálfstæðis í vinnubrögðum og nákvæmni. Við leitum eftir öflugum starfsmanni, með haldgóða þekkingu á skjalamálum, til að vinna á Héraðsskjalasafninu og vera hluti af starfsliði Safnahúss Borgarfjarðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að annast skráningu á skjölum og veita almenningi aðgang að þeim og öðrum safnkosti.
- Hafa umsjón með, skipuleggja og veita ráðgjöf um skjalavistun til handa stofnunum á vegum sveitarfélagsins, bæði pappírs- og rafræna skjalavistun.
- Að leiðbeina um vistun, varðveislu og grisjun skjala og hafa eftirlit með því að opinberum reglum sé fylgt.
- Að annars daglega umsýslu, m.a. móttaka og skráning skjala, aðstoð og upplýsingagjöf til gesta og heimildaöflun.
- Að innheimta þau skjöl frá stofnunum sveitarfélagsins sem skylt er að afhenda samkvæmt lögum og hafa eftirlit með skjalavörslu þeirra.
- Ber ábyrgð á skjalageymslum safnsins og ber faglega ábyrgð á því að varðveisla standist kröfur um ábyrga skjalavörslu.
- Sér um miðlunarvef á vegum skjalasafns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á lögum, reglum og samþykktum er gilda um opinbera skjalavörslu.
- Reynsla og þekking á skjalavörslu og rafrænni skjalavistun.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Mjög góð samskiptahæfni, jákvæðni, lipurð í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð tölvukunnátta og þekking á notkun algengra töluforrita, s.s. OneSystem og Office.
- Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu og stjórnsýslusögu þess kostur.
Advertisement published9. December 2025
Application deadline30. December 2025
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Bjarnarbraut 4-6 4R, 310 Borgarnes
Type of work
Skills
ReliabilityProactiveHuman relationsPrecisionIndependenceMeticulousnessCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (6)

Auglýst eftir íþróttakennara í 30% stöðu á Varmalandi
Borgarbyggð

Grunnskóli Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum auglýsir eftir stuðningsfulltrúa
Borgarbyggð

Starfsmaður í áhaldahús
Borgarbyggð

Vaktstjóri - Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð


