
Verne
We’ve found the best place in the world for high intensity compute. Right here, in Iceland. Using 100% renewable energy, we give you supernatural capability that doesn’t cost the Earth. When you're backed by the planet, your potential is limitless.
Gæðaeftirlitsstjóri (QA/QC Manager)
Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn gæðaeftirlitsstjóra til að leiða gæðaeftirlit í umfangsmikilli uppbyggingu gagnavers sem unnið er samkvæmt „FIDIC Yellow Book“ hönnunar- og verktakasamningi.
Viðkomandi verður leiðandi fulltrúi fyrirtækisins í gæðamálum á verkstað og ber ábyrgð á að hönnun, innkaup, framkvæmdir, prófanir, gangsetning og afhending uppfylli samningsbundnar kröfur, tæknilegar þarfir, viðeigandi staðla og væntingar viðskiptavina.
Um er að ræða lykilhlutverk í að tryggja vandaða og örugga aðstöðu ásamt því að styðja við markmið verkefnisins hvað varðar framvindu og rekstrarárangur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón með gæðaeftirlitsferlum og að gæðakröfum sé fylgt.
- Yfirfara gæðaáætlanir, skoðunar- og prófunaráætlanir (ITP), verklýsingar og tæknileg skilagögn.
- Eftirlit með gæðum framkvæmda, skoðunum, prófunum, gangsetningu og undirbúningi afhendingar.
- Utanumhald með frávikaskýrslum, göllum, úttektarlistum, úrbótum og skýrslugjöf.
- Tryggja að gæðaskjöl, prófunargögn og afhendingargögn séu fullgerð, rekjanleg og hæf til úttektar.
- Styðja við úttektir viðskiptavina og umsýslu með samþykktarferli verkefnisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð reynsla af stjórnun gæðaeftirlits í verkefnum tengdum gagnaverum, mannvirkjum, iðnaði, orkuvirkjum eða flóknum framkvæmdaverkefnum.
- Góð þekking á hönnunar- og framkvæmdaverkefnum og FIDIC samningum.
- Reynsla af gangsetningu, prófunum, afhendingu og gæðastjórnunarkerfum.
- Framúrskarandi samskiptahæfni, færni í samskiptum við hagaðila og lausnamiðað hugarfar.
- Geta til að ná árangri í hröðu og krefjandi umhverfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Advertisement published26. August 2026
Application deadline8. September 2026
Language skills
EnglishRequired
Location
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsContractsIndependenceQuality tracking systemsProject management
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Commissioning and Qualification Specialist
Alvotech hf

Sérfræðingur í vatnsmiðlum
EFLA hf

Sérfræðingur á viðhaldssviði / Maintenance Specialist
Alvotech hf

Verkefnastjóri framkvæmda (On-Site Engineering Manager)
Verne

Cost Controller
Verne

Forstöðumaður viðskipta- og samningsmála (Senior Commercial Manager)
Verne

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Sérfræðingur í hönnunarstjórn jarðganga
Vegagerðin

Verkefnastjóri framkvæmda - hafnarmannvirki
Umhverfissvið

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi og gæðamálum
VÍS

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA hf

Research and Development Engineer
HYDRAM rannsóknir ehf.