Verne
Verne

Cost Controller

Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í starf „Cost Controller“ til að styðja við fjárhagslega og viðskiptalega stjórnun gagnaversframkvæmdar sem unnin er samkvæmt „FIDIC Yellow Book“ hönnunar- og verktakasamningi.

Viðkomandi mun sjá um kostnaðareftirlit á framkvæmdastað og halda utan um fjárhagsáætlanir, kostnaðarspár, sjóðstreymi, breytingar, kröfur og fjárhagslega áhættu á öllum stigum verkefnisins.

Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi hefur yfirsýn yfir fjárhagsstöðu, kostnaðaröryggi og öflugri fjármálastýringu í hröðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Eftirfylgni með fjárhagsáætlunum, kostnaði, skuldbindingum verkefnisins og fjárhagsspám.
  • Utanumhald með kostnaðarbreytingum, kröfum og fjárhagslegri áhættu.
  • Yfirfara greiðslubeiðnir, reikninga og innkaupabeiðnir.
  • Útbúa kostnaðarskýrslur, sjóðstreymisspár og uppfæra áætlanir vegna heildarkostnaðar verkefnisins (EAC).
  • Veita stuðning vegna samningsumsýslu, fjármálastjórn og áhættustýringu.
  • Samskipti og samstarf við verkefna-, verkfræði-, framkvæmda-, innkaupa- og fjármálateymi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð þekking og reynsla af kostnaðareftirliti í umfangsmiklum verkefnum á sviði mannvirkjagerðar, gagnavera, iðnaðar, orku eða innviða.
  • Reynsla af kostnaðarspám, skýrslu- og áætlanagerð og annarri umsýslu.
  • Þekking á FIDIC-samningum og reynsla af alverktöku þar sem verktaki ber ábyrgð á bæði hönnun og framkvæmd.
  • Mjög góð kunnátta á Excel og reynsla af verkefna- og kostnaðarstýringu. Reynsla af ERP-kerfum og ACC er kostur.
  • Góð greiningarhæfni og reynsla af samskiptum við hagaðila.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Advertisement published26. August 2026
Application deadline8. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags