Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni

Sérfræðingur á fjármálasviði

Fjármálasérfræðingur er hluti af fjármálasviði BakoVerslunartækni og vinnur náið með fjármálastjóra að fjármálastýringu, uppgjörum, áætlanagerð, greiningum, afstemmingum og þróun stjórnendaupplýsinga.

Starfið er fjölbreytt og felur í sér bæði reglubundin verkefni fjármálasviðs og þátttöku í þróun ferla og upplýsingagjafar. Lögð er áhersla á greiningarhæfni, nákvæmni og getu til að sjá samhengi í rekstri og fjármálum félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í mánaðar- og ársuppgjörum.
  • Afstemmingar og eftirlit með fjárhagsbókhaldi.
  • Greining rekstrar og fjárhagslegra upplýsinga.
  • Mánaðarleg greining á rekstri, m.a. tekjum, framlegð og kostnaði.
  • Þátttaka í uppgjöri og afstemmingu VSK og annarra opinberra gjalda.
  • Eftirlit með viðskipta- og lánadrottnastöðum og öðrum lykilreikningum.
  • Þátttaka í samskiptum við endurskoðendur og undirbúningi gagna vegna ársuppgjörs.
  • Þátttaka í þróun og nýtingu Business Central, Power BI og annarra fjármálakerfa.
  • Aðrar fjárhagslegar greiningar og verkefni í samstarfi við fjármálastjóra og stjórnendur félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, reikningshalds eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af uppgjörum, fjármálagreiningum og/eða áætlanagerð er kostur.
  • Mjög góð Excel-kunnátta.
  • Reynsla af Business Central eða sambærilegu ERP-kerfi er kostur.
  • Þekking á Power BI og/eða annarri gagnagreiningu er mikill kostur.
  • Góð greiningarhæfni og áhugi á að vinna með gögn og stjórnendaupplýsingar.
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt.
Advertisement published27. August 2026
Application deadline15. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Dragháls 22
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReconciliationPathCreated with Sketch.Financial statementsPathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.BillingPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Write up
Professions
Job Tags