Verne
Verne

Forstöðumaður viðskipta- og samningsmála (Senior Commercial Manager)

Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í stöðu forstöðumanns viðskipta- og samningsmála sem mun leiða viðskiptalega, samningslega og fjárhagslega stjórnun umfangsmikillar uppbyggingar gagnavers.

Viðkomandi mun starfa á framkvæmdastað og felur starfið í sér stefnumótandi ábyrgð á innkaupum, samningsumsýslu, kostnaðareftirliti, breytingastjórnun, kröfum, áhættustýringu og uppgjöri verkefnisins með það að markmiði að tryggja að hagsmunir verkkaupa séu ávallt í fyrirrúmi.

Um er að ræða lykilhlutverk í yfirstjórn verkefnisins þar sem tækifæri gefst til að hafa veruleg áhrif á viðskiptalegan árangur og verðmætasköpun gagnaversins í flóknu og hröðu verkefnaumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með viðskiptalegri stjórnun verkefnisins allt frá innkaupaferli, samningsgerð og framkvæmdum til lokauppgjörs.
  • Annast umsýslu FIDIC samninga og tryggja að farið sé eftir samningsskilmálum, tilkynningarskyldum, greiðsluákvæðum, breytingaferlum og ferlum vegna ágreiningsmála.
  • Ábyrgð á breytingastjórnun, viðbótar- og breytingaverkum, kröfum, framlengingarbeiðnum á verktíma og samningaviðræðum.
  • Yfirumsjón með kostnaðareftirliti, fjárhagsáætlanagerð, kostnaðarspám, sjóðstreymi, áhættustýringu og skýrslugerð.
  • Styðja við og veita verkefnastjórum og lykilhagaðilum ráðgjöf vegna kostnaðar.
  • Tryggja öfluga stjórnarhætti varðandi samninga, áhættu, breytingar og kröfur.
  • Samskipti og samstarf við lögfræðinga, innkaupateymi, verkefnastjóra, framkvæmdateymi og aðra hagsmunaaðila.
  • Leiða lokauppgjörsviðræður og styðja við farsæl verklok.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af viðskiptastjórnun, samningsumsýslu eða kostnaðarráðgjöf (quantity surveying) í stórum verkefnum tengdum mannvirkjum, innviðum, iðnaði, gagnaverum eða öðrum tæknilega krefjandi verkefnum.
  • Góð þekking á FIDIC samningum.
  • Reynsla af stjórnun umfangsmikilla verkþátta tengdum MEP kerfum, raforkuinnviðum, varaafli, kælikerfum og gangsetningu.
  • Mjög góð viðskipta- og fjármálaþekking, samningatækni og hæfni í samskiptum við hagaðila.
  • Háskólamenntun á sviði viðskipta, verkfræði, lögfræði eða sambærilegra greina.
  • Fagvottanir á borð við MRICS, MCIOB, PMP, CIArb, AACE eða sambærilegar vottanir eru kostur.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar og leiðtogahæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Advertisement published26. August 2026
Application deadline8. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Cash flowPathCreated with Sketch.Business administrator
Professions
Job Tags