
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Sérfræðingur í hönnunarstjórn jarðganga
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hönnun og hönnunarstjórn jarðganga á hönnunardeild Vegagerðarinnar.
Á vegakerfi Íslands eru 13 jarðgöng, samtals 64,8 km. staðsett víðsvegar um landið.
Framundan eru fjölbreytt og umfangsmikil verkefni á sviði jarðganga og leitum við að öflugum sérfræðingi til að taka þátt í undirbúningi, hönnun og þróun þeirra.
Á hönnunardeild starfa 15 sérfræðingar við verkefnis- og hönnunarstjórnun, hönnun vega, jarðganga og brúa, mat á umhverfisáhrifum, vatnafarsgreiningar ásamt gerð kostnaðaráætlana, verk- og útboðslýsinga. Starfsstöðvar eru á Akureyri og í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og hönnunarstjórn nýrra jarðganga aðstoð við áætlanagerð, undirbúning og framkvæmd jarðgangaverkefna.
- Hönnunarstjórn jarðganga á landsbyggðinni og stokkalausnum í þéttbýli.
- Fagleg ráðgjöf varðandi viðhaldsaðgerðir í jarðgöngum.
- Þátttaka í undirbúningi og hönnunarstjórn stórra og umfangsmikilla samgönguverkefna á höfuðborgarsvæðinu.
- Samstarf og samráð við þvert a deildir Vegagerðarinnar, ráðgjafa og aðra hagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf æskilegt.
- Reynsla af hönnun eða hönnunarstjórn samgöngumannvirkja eða jarðganga er æskileg.
- Leiðtogafærni og nýsköpunarhugsun.
- Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í þverfaglegu teymi.
- Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
- Rík öryggisvitund.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. Kunnátta í norðurlandamáli kostur.
Advertisement published14. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
DanishOptional
Location
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Fjarskiptastofa

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Verkefnastjóri þjónustusviðs (Viðhald og breytingar)
Atlas Verktakar ehf

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA hf

Reliability & Safety Analyst
Air Atlanta Icelandic

Design Manager
Borealis Data Center ehf.

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Research and Development Engineer
HYDRAM rannsóknir ehf.

Liðsstjóri Samþættingateymis
Sýn

Senior Product Manager for Weighing & Grading
JBT Marel

Áreiðanleikasérfræðingur / Reliability Engineer
Alcoa Fjarðaál