

Framkvæmdastjóri Dansíþróttasambands Íslands
Dansíþróttasamband Íslands óskar eftir að ráða drifkraftsmikinn og metnaðarfullan framkvæmdastjóra. Viðkomandi mun bera ábyrgð á daglegum rekstri og framtíðaruppbyggingu sambandsins. Hjá DSÍ ríkir mikill metnaður til að efla og styrkja starfið enn frekar. Við erum í miklum uppgangi og erum stolt af því að hafa heimsmeistara innan okkar vébanda.
Ef þú hefur brennandi áhuga á íþróttastarfi og vilt hafa raunveruleg áhrif, þá viljum við heyra frá þér!
• Yfirumsjón með fjármálum og bókhaldi
• Mótun á starfsemi sem endurspeglar framtíðarsýn DSÍ
• Daglegur rekstur, skipulag og framkvæmd rekstraráætlana
• Þátttaka í fjármögnun og samningsgerð
• Efling traustra tengsla við fjölmiðla, samstarfsaðila og aðildarfélög
• Ábyrgð á markaðsmálum
• Samskipti við erlenda samstarfsaðila
• Utanumhald og skipulag viðburða
• Samskipti við ÍSÍ og stjórnvöld
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og þekking á bókhaldi
• Reynsla af stjórnun
• Reynsla af rekstri, sölu og markaðsmálum
• Reynsla af samningsgerð
• Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
• Framsýni, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
English
Icelandic










