BSRB
BSRB
BSRB

Framkvæmdastjóri – BSRB

BSRB leitar að metnaðarfullum og öflugum framkvæmdastjóra til að leiða og þróa daglega starfsemi bandalagsins í nánu samstarfi við kjörna forystu. Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á hagsmunabaráttu og hæfni til að starfa í kraftmiklu og framsæknu umhverfi. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og reynir á frumkvæði, leiðtogahæfni og skipulagshæfileika.

Meginhlutverk BSRB felst í hagsmunagæslu fyrir félagsfólk aðildarfélaganna gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum að því meginmarkmiði stuðla að jöfnum tækifærum fjölbreyttra hópa og aukinni velferð. Helstu málaflokkar sem einkenna daglegt starf bandalagsins eru á sviði vinnumarkaðs- og velferðarmála, almannaþjónustu og starfsfólks hennar, húsnæðismála, heilbrigðismála, jafnrétti og inngildingar, réttlátra umskipta, lífeyrismála og menntamála.

Framkvæmdastjóri og formaður BSRB vinna náið saman að markmiðum samkvæmt stefnumótun bandalagsins og bera ábyrgð á starfsemi þess. Þá eru mannauðsmál og ábyrgð á rekstri á hendi framkvæmdastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgja eftir ákvörðunum þings BSRB, aðalfundar, stjórnar og formannaráðs BSRB
  • Ábyrgð á mannauðsmálum á skrifstofu bandalagsins
  • Samskipti og samstarf við aðildarfélög BSRB, aðra aðila vinnumarkaðarins, stjórnvöld og erlend samtök launafólks í samráði við formann
  • Stuðla að þróun, nýjungum og eflingu starfsemi bandalagsins
  • Fulltrúi bandalagsins í ýmsum nefndum og ráðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf æskilegt
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þekking eða reynsla af stjórnun og rekstri
  • Þekking eða reynsla á sviði vinnumarkaðsmála, félags- og efnahagsmála
  • Þekking og metnaður fyrir starfsemi félagasamtaka og skilningur á málefnum verkalýðshreyfingarinnar og hugsjónum hennar
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni í ensku og kostur að hafa góð tök á einu Norðurlandamáli
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti
Advertisement published13. February 2026
Application deadline2. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
DanishDanish
Required
Intermediate
Location
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags