
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Forstöðumaður í Barnahúsi
Barna- og fjölskyldustofa leitar að framsæknum leiðtoga til að hafa forystu um starfsemi Barnahúss. Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðisofbeldi, líkamlegu ofbeldi eða heimilisofbeldi. Barnahús hefur verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og innleiðingu gagnreyndra aðferða. Leiðtogi Barnahúss þarf að hafa þekkingu á málefnum barna sem eru þolendur ofbeldis og afburða hæfni til að leiða starfsemina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur Barnahúss
- Ábyrgð á þróun og framkvæmd á faglegu meðferðarstarfi
- Ábyrgð á faglegum leiðbeiningum til sérfræðinga sem vinna með börnum sem og til almennings
- Ábyrgð á meðferðar- og rannsóknarviðtölum við börn sem eru þolendur ofbeldis
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
- Kynningar og fræðsla um starfsemi Barnahúss
- Skýrslu- og vottorðaskrif
- Ráðgjöf við barnaverndarþjónustur og aðra samstarfsaðila vegna ofbeldisbrota
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á meistarastigi eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi er skilyrði
- Þekking á sviði meðferðar barna, af vinnu með þolendum ofbeldis, vinnu með foreldrum og af barnaverndarstarfi er æskileg
- Leiðtogahæfni og hæfni til að hvetja aðra til árangurs
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Geta til að leiða og hafa umsjón með verkefnum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Advertisement published4. February 2026
Application deadline17. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna
Orka náttúrunnar

Forstöðumaður flugstöðvarþjónustu á Keflavíkurflugvelli
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Sálfræðingur í skólaþjónustu
Akureyri

Skrifstofustjóri á skrifstofu nýsköpunar og þróunar
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Forstöðumaður upplýsingatækni
Íslensk fjárfesting

Staðgengill forstöðumanns og sundlaugarvörður óskast
Rangárþing ytra

Ráðgjafi í barnavernd
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar

Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk
Mannréttindastofnun Íslands

Vilt þú stýra sölu og þjónustu hjá Ljósleiðaranum?
Ljósleiðarinn

Svæðisstjóri Norðurlands
Hreint ehf

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Sálfræðingur
Háskóli Íslands