Mannréttindastofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands

Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk

Mannréttindastofnun Íslands leitar að einstaklingi til að starfa við réttindagæslu fatlaðs fólks. Starfið felur í sér bein og fagleg samskipti við einstaklinga, þar á meðal símtöl, vettvangsheimsóknir, leiðbeiningar og eftirfylgni í málum sem varða réttindi einstaklinga. Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur faglega þekkingu og skilning á aðstæðum fatlaðs fólks og býr yfir hæfni til að eiga samskipti við fólk sem notar óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eða þarfnast stuðnings til að koma vilja sínum á framfæri.

Í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Parísarviðmið um sjálfstæðar mannréttindastofnanir leggur Mannréttindastofnun Íslands áherslu á fjölbreytni í starfsliði sínu og hvetur fatlað fólk sérstaklega til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks er að fylgjast með mannréttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning við réttindagæslu, í samræmi við lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Verkefni felast m.a. í að:

  • Veita fötluðu fólki leiðbeiningar og stuðning til að standa vörð um réttindi sín og sjálfsákvörðunarrétt
  • Eiga í beinum samskiptum við einstaklinga, þar á meðal með óhefðbundnum tjáskiptaleiðum
  • Heimsækja vettvang, hitta einstaklinga í þeirra umhverfi og byggja upp traust og tengsl
  • Koma sjónarmiðum og réttindum fatlaðs fólks á framfæri gagnvart þjónustuaðilum og stofnunum og eftir atvikum fylgja málum eftir
  • Veita upplýsingar um réttindi fatlaðs fólks samkvæmt íslenskum lögum og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
  • Starfa í teymi réttindagæslumanna innan Mannréttindastofnunar Íslands
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi frá landlækni á sviði félagsráðgjafar, sálfræði, þroskaþjálfunar eða annað sambærilegt nám
  • Þekking á réttindum fatlaðs fólks og viðeigandi löggjöf ásamt þjónustu- og stuðningsúrræðum
  • Reynsla af samskiptum við fatlað fólk
  • Færni í notkun óhefðbundinna tjáskiptaleiða og stuðningi við fólk með fjölbreyttar stuðningsþarfi kostur
  • Hæfni til að hlusta, skilja aðstæður einstaklinga og miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt
  • Mjög góð samskiptahæfni
  • Jákvætt viðmót, þjónustulund og hugarfar grósku
  • Skipulagshæfni, greiningarfærni og frumkvæði
  • Reynsla af teymisvinnu kostur
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published9. February 2026
Application deadline25. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Bríetartún 7, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags