

Framendaforritari
Við leitum að framendaforritara sem brennur fyrir framúrskarandi notendaupplifun, notendavænu viðmóti og vönduðum kóða. Hlutverkið felur í sér að leiða framendaforritun á stafrænum lausnum RÚV með áherslu á aðgengi, gæði og nýtingu nýrrar tækni og sjálfvirkni í þróunarferlum.
Við bjóðum upp á lifandi, skemmtilegan og fjölskylduvænan vinnustað og ekki síst frábært teymi til að starfa með.
Hugbúnaðarþróun RÚV er framsækið teymi sem hefur frelsi til nýsköpunar og svigrúm til að prófa sig áfram með nýja tækni. Við vinnum í Agile- vinnuumhverfi og þróum meðal annars lausnir sem eru notaðar af stórum hluta landsmanna á degi hverjum og þola mikið álag.
- Hanna og þróa hugbúnaðarlausnir sem gera RÚV kleift að miðla efni eftir skýrum og skilvirkum stafrænum leiðum í útvarpi, sjónvarpi, vef, hlaðvarpi og spilara
- Þátttaka í mótun, hönnun og þróun nýrrar kynslóðar lausna í samstarfi við hagsmunaaðila
- Rekstur og viðbætur við núverandi lausnir
Í hverju vinnum við:
- Next.js, React, HTML og CSS
- JavaScript/TypeScript
- GraphQL
- CI/CD, Gitlab
- AWS, Terraform
- B.Sc í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tengdu sviði og/eða reynsla af því að þróa notendavænar lausnir sem hafa náð árangri
- Reynsla af aðgengishönnun (WCAG) og bestun á frammistöðu veflausna
- Reynsla af eða áhugi á gervigreindar þróunarverkfærum og sjálfvirkni í kóðaskrifum og prófunum
- Fagleg vinnubrögð, metnaður til að læra, samskiptahæfni og vilji til að miðla reynslu
- Reynsla eða þekking á Agile-hugmyndafræði og teymisvinnu
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026 og unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast.
Nánari upplýsingar veitir Starkaður Örn Arnarson, deildarstjóri hugbúnaðarþróunar, [email protected].
RÚV hefur á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu í samræmi við áherslur í auglýsingu.
Icelandic










