Payday ehf.
Payday ehf.
Payday ehf.

Hugbúnaðarsérfræðingur

Payday leitar að lausnamiðaðri manneskju sem brennur fyrir forritun og hugbúnaðarþróun til að slást í hóp öflugs teymis sem þjónustar ört vaxandi hóp viðskiptavina.

Við leitum að öflugum forritara sem er fljótur að tileinka sér nýja þekkingu, hefur gagnrýna hugsun og ríka þjónustulund. Við leggjum áherslu á að umsækjandi sé framsækinn og nýti nýjustu tól, þar á meðal gervigreind, til að auka gæði og skilvirkni í sínu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í að þróa, útfæra, forrita og prófa lausnir Payday.
  • Greining, hönnun, nýþróun og bestun hugbúnaðar.
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs.
  • Virk nýting á AI-hjálpartólum (t.d. Cursor, GitHub Copilot, Claude eða svipuðum lausnum) við hugbúnaðargerð.
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 2-3 ára marktæk reynsla af hugbúnaðarþróun í atvinnulífinu er æskileg.
  • Reynsla af notkun gervigreindar (AI) við forritun og þróun er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af .NET/C# og MSSQL er nauðsynleg.
  • Þekking og reynsla af GIT, Azure og OAuth er kostur.
  • Geta til að læra hratt á nýja tækni, öflug úrlausnarhæfni og greiningarhæfni.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur.
  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
Advertisement published12. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bæjarlind 14-16 14R, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Computer scientist
Professions
Job Tags