
TACTICA
TACTICA er upplýsingatæknifyrirtæki á íslenskum markaði í örum vexti sem sinnir fjölbreyttum störfum í tölvu- og vefþjónustu á fyrirtækjamarkaði.
Markmið TACTICA eru meðal annars að vera alhliða þjónustuaðili sinna viðskiptavina og veita þeim persónusniðna og góða þjónustu. TACTICA rekur hysingar.is sem er meðal stærstu hýsingaraðila á Íslandi og hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna.
Félagið var stofnað 2012 og höfum frá upphafi kappkostað að hafa vinalegt og gott starfsumhverfi.

Langar þig að vera AI Orchestrator
Langar þig að vinna í fremstu víglínu gervigreindar?
TACTICA leitar að framsýnum og drífandi AI Orchestrator sem þorir að hugsa stórt og er tilbúinn að taka þátt í að móta hvernig fyrirtækið nýtir gervigreind í daglegum rekstri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sem AI Orchestrator munt þú stýra og samhæfa AI kerfi, vinnuferla og agents sem leysa raunveruleg verkefni fyrir okkur og viðskiptavini okkar. Þú verður í lykilhlutverki við að tengja saman tækni, fólk og ferla.
Hluti starfsins felst í að taka virkan þátt í vöruþróunarstarfi TACTICA þar sem við vinnum að hinum ýmsu lausnum fyrir íslenskt atvinnulíf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Getur haldið mörgum boltum á lofti samtímis og getur unnið ein/n eða í teymi
- Hefur þekkingu og reynslu af forritun
- Hefur áhuga á LLM, agents, automation og nýjustu AI tólunum
- Er forvitinn, frumkvöðull í eðli sínu og finnst gaman að leysa flókin vandamál
- Hefur góða samskiptahæfni og getur útskýrt tækni fyrir öllum
Kostur ef þú hefur reynslu af
- Hefur unnið með Claude, GPT, MCP eða önnur AI tól
- Hefur reynslu af workflow automation (t.d. n8n, Zapier, Make)
- Þekkir til API-tenginga og kerfauppbyggingar
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnudögum (hybrid fyrirkomulag)
- Tækifæri til að þróast í öflugu tækniumhverfi
- Skemmtilegt og óþvingað vinnuumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Farsímaáskrift og nettenging
- Aðgengi að heitum mat í hádeginu
- Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Advertisement published12. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
Backend developmentArtificial intelligenceSoftware testingSystem architectureUser Interface
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Hugbúnaðarsérfræðingur / Forritari
KAPP ehf

Framendaforritari
RÚV

Tech Lead – Travel
Icelandair

Hugbúnaðarsérfræðingur
Payday ehf.

Hópstjóri Kerfisrekstrar
TACTICA

Sumarstarf - Marketplace samþættingar
50skills

Forritari / hugbúnaðarþróunaraðili óskast í spennandi fiskeldis- og tækniverkefni
KAPP ehf

Tæknistjóri hugbúnaðarþróunar
Reykjavíkurborg

AI Solutions Engineer
atNorth

Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Landspítali

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (QA)
APRÓ

AI-first Full Stack Developer
TimeXtender