

Fréttamaður á næturvaktir
Fréttastofa RÚV leitar að öflugum fréttamanni á næturvaktir í miðlun frétta í útvarpi og á vef.
Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi sem er vel ritfær og hefur góða framsögn. Á fréttastofu RÚV starfar fjölbreyttur og metnaðarfullur hópur fólks með mikla reynslu og þekkingu í kraftmiklu og skapandi umhverfi.
Ráðið verður í fullt starf sem er unnið á næturvöktum, að jafnaði aðra hverja viku.
- Vinnsla frétta.
- Miðlun frétta á vef og í útvarpi.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af blaða- og fréttamennsku er kostur.
- Mjög gott vald á íslenskri tungu.
- Góð almenn tungumálaþekking.
- Góð framsögn.
- Góð almenn tölvufærni og áhugi á að tileinka sér nýja tækni.
- Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna hratt og vel.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Reynsla af vaktavinnu er kostur.
Nánari upplýsingar veita Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri, [email protected]og Ragnhildur Hrefna Thorlacius, varafréttastjóri, [email protected].
RÚV hefur á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu í samræmi við áherslur í auglýsingu. Umsóknir á erlendum tungumálum og umsóknir án viðeigandi umsóknargagna verða ekki teknar til greina.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí.
Icelandic
English