Akureyri
Akureyri
Akureyri

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Verkefnastjóri einstaklingsstuðnings

Vilt þú vinna með okkur gegn félagslegri einangrun?

Fræðslu- og lýðheilsusvið óskar eftir verkefnastjóra einstaklingsstuðnings. Um er að ræða ótímabundið starf. Starfshlutfall 80% og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í júní 2026.

Einstaklingsstuðningur er innan málaflokks tómstundamála ásamt félagsmiðstöðvunum Birtu og Sölku. Markmið þjónustunnar er að veita einstaklingsbundna þjónustu og efla viðkomandi einstaklinga til sjálfshjálpar og sjálfræðis og að geta notið menningar og félagslífs eftir þörfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur einstaklingsstuðning við notendur og fylgist með því að hann þjóni tilgangi sínum. 
  • Metur þörf umsækjenda fyrir umbeðna þjónustu, gerir þjónustusamninga við notendur og fylgir þeim eftir eins og þörf er á.
  • Sér um úrvinnslu umsókna og fer með viðeigandi mál fyrir matsteymi.
  • Skipuleggur paranir notenda og starfsfólks.
  • Fer með umsjón með þeim þróunarverkefnum sem eru í gangi hverju sinni.
  • Annast ráðningu starfsfólks í tímavinnu í einstaklingstuðningi í umboði forstöðumanns og tryggir að starfsfólk fái nauðsynlegar upplýsingar og fræðslu um starfið. Sér um frágang við starfslok starfsfólks.
  • Sér tímaskráningar og bunkun til launa.
  • Vinnur að skjalamálum í tengslum við starf og verkefni.
  • Sinnir ráðgjöf og stuðningi við starfsmenn í einstaklingsstuðningi. Útvegar aðra ráðgjöf  ef þörf krefur.
  • Hefur regluleg samskipti við aðstandendur notenda og veitir þeim ráðgjöf og stuðning.
  • Hefur umsjón með og sinnir verkstjórn yfir Köppunum sem er sumarnámskeið fyrir börn. Samskipti við forráðamenn, skipulag á dagskrá, umsjón yfir samfélagsmiðlum, upplýsingaflæði til starfsmanna og heldur starfsmannafundi.
  • Hefur umsjón með Sumarvinnu með stuðningi. Tekur á móti umsóknum, metur stuðningsþörf og parar við vinnustaði.
  • Vinnur með ágreinings- og umkvörtunarefni ef upp koma og leiðbeinir hlutaðeigandi aðilum í slíkum tilvikum.
  • Tekur þátt í þróun starfsins í samvinnu við forstöðumann og aðra samstarfsfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Starfið krefst þekkingar á málefnum stærstu notendahópa þjónustunnar, þ.e. fatlaðra og þeirri þjónustu sem þeim á að standa til boða. 
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu deildarinnar.
  • Krafist er a.m.k. 2-3 ára reynslu af starfi með fötluðum eða einstaklingum sem glíma við sértækan eða fjölþættan vanda.
  • Ökuréttindi.
  • Skilyrði eru stundvísi, sveigjanleiki, samviskusemi og jákvætt viðhorf til fólks.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Starfsmaður þarf að:

  • Vera lipur og jákvæður í samskiptum, vandvirkur, samviskusamur og þagmælskur.
  • Vera sveigjanlegur vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að þjónusta.
  • Sýna frumkvæði, samvinnuhæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Hafa til að bera hæfni til nýsköpunar, verkefnastjórnunar og innleiðslu nýrra hugmynda og vinnubragða.
Advertisement published16. March 2026
Application deadline25. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.InnovativePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags