
Forstöðumaður framkvæmda
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf forstöðumanns framkvæmda. Um nýtt starf er að ræða sem heyrir beint undir sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs. Forstöðumaður mun bera ábyrgð á nýframkvæmdum, gatnagerð og stærri viðhaldsframkvæmdum ásamt því að hafa yfirumsjón með fráveitum í sveitarfélaginu. Forstöðumaður er millistjórnandi og mun garðyrkjudeild, þjónustumiðstöð, eignasjóður og umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi heyra undir hann. Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á framkvæmdum og viðhaldi á eignum sveitarfélagsins, m.a. fasteignum, fráveitu og gatnakerfi í samráði við sviðsstjóra.
- Upplýsingaöflun og miðlun, ráðgjöf, skýrslugerð og úttektir.
- Uppbygging á upplýsingakerfum og gagnagrunnum sveitarfélagsins.
- Eftirfylgni fjárhagsáætlana.
- Uppgjör verka og samþykkt reikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verk-, bygginga- eða tæknifræði.
- Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi eða víðtæk stjórnunar- og/eða rekstrar reynsla.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu.
- Reynsla af fráveitu og verklegum framkvæmdum.
- Reynsla af rekstri og mannaforráðum.
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Almenn ökuréttindi.
- Hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkfræðingafélag Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs í síma 455 6205 ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi. Jafnframt skulu prófskírteini fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.












