Golfskálinn
Golfskálinn
Golfskálinn

Forstöðumaður ferðaþjónustu

Viltu leiða spennandi uppbyggingu í golfferðaþjónustu?

Golfskálinn leitar að öflugum forstöðumanni ferðaþjónustu.

Golfskálinn er leiðandi fyrirtæki á sviði golfferða og golfverslunar á Íslandi. Við bjóðum bæði einstaklingum og hópum upp á vandaðar golfferðir til vinsælla áfangastaða í Evrópu og víðar. Starfsemin er í örum vexti og nú leitum við að drífandi einstaklingi til að leiða og þróa ferðaþjónustuhluta fyrirtækisins með okkur.


Við leitum að forstöðumanni ferðaþjónustu í 100% framtíðarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og skipulagning golfferða frá A til Ö (val á flugi, áfangastöðum, fararstjórum, golfkennurum o.fl.).
  • Umsjón með framkvæmd golfferða í samvinnu við fararstjóra og samstarfsaðila.
  • Samskipti og samningar við birgja og samstarfsaðila (hótel, flugfélög, rútufyrirtæki, fararstjórar, golfkennarar o.fl.).
  • Bókanir, umsýsla og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum (tölvupóstur, símtöl, samfélagsmiðlar).
  • Viðhald á bókunarkerfum og upplýsingagjöf til viðskiptavini.
  • Eftirfylgni með upplifun viðskiptavina og umbætur byggðar á endurgjöf.
  • Þróa verklag og ferla sem auðvelt verður að skala upp þegar fleiri starfsmenn bætast við.
  • Mótun á stefnu og framtíð ferðaþjónustunnar í samvinnu við framkvæmdastjóra og stjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkefnastjórnun, skipulagningu ferða eða viðburða er kostur.
  • Mikil þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að vinna undir álagi og leysa vandamál hratt og fagmannlega.
  • Góð tölvukunnátta og færni í notkun stafrænna samskiptatækja.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Brennandi áhugi og þekking á golfíþróttinni er mikill kostur.
Advertisement published20. June 2025
Application deadline13. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Bíldshöfði 16, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.GolfPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags