Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Ert þú fjölhæf markaðsmanneskja?

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugri markaðsmanneskju í samheldið teymi á samskiptasviði. Um er að ræða tímabundna stöðu í 12 mánuði (með möguleika á framlengingu). Viðkomandi mun m.a. sinna efnisgerð (e. content creation) fyrir samfélagsmiðla og vef HR, uppsetningu herferða, gerð markaðsefnis í samstarfi við viðeigandi aðila og akademískar deildir, taka þátt í framhaldsskólakynningum, halda utan um viðburði og taka þátt í almennu markaðs- og kynningarstarfi HR.

Helstu verkefni

  • Umsjón með efnissköpun, birtingum og herferðum á samfélagsmiðlum
  • Þátttaka í að móta markaðsherferðir, markhópa og miðlunarleiðir
  • Markaðssetning á viðburðum í nafni HR
  • Framhaldsskólakynningar
  • Textaskrif í tengslum við markaðs- og kynningarefni
  • Samskipti við innri og ytri hagaðila
  • Umsjón með viðburðum og kynningum í nafni HR
  • Umsjón með markaðsefni á vef HR og uppfærsla á efni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stafrænni markaðssetningu og notkun Meta Ads Manager
  • Þekking á Google Ads er kostur
  • Reynsla af efnissköpun fyrir Instagram Reels og TikTok
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna vel í hópi
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.

Allar nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Háskólans í Reykjavík, [email protected], og Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, [email protected].

Advertisement published18. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Content writing
Professions
Job Tags