Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri á sviði mannauðsmála

Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf verkefnastjóra á sviði mannauðsmála með áherslu á þjónustu og móttöku við erlent starfsfólk og jafnréttismál. Starfið er bæði fjölbreytt og spennandi fyrir aðila sem er sífellt til í að þróast og takast á við nýjar áskoranir. Starfið er 100% og er hluti af mannauðsteymi HR.

Verkefni

  • Umsýsla dvalar- og atvinnuleyfa við erlent starfsfólk
  • Móttaka og þjónusta við erlent starfsfólk
  • Sinna stöðu jafnréttisfulltrúa HR í jafnréttisnefnd,
    • Fundaritari jafnréttisnefndar og tengiliður ásamt formanni nefndarinnar við aðila innan og utan HR
    • Taka þátt í að framfylgja jafnréttisáætlun, skipulagningu á jafnréttisviðburðum og samstarfi um jafnréttismál
  • Þátttaka í daglegum mannauðsmálum í nánu samstarfi við mannauðsteymið
  • Þátttaka í þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
  • Önnur tilfallandi verkefni á sviði mannauðsmála

Hæfni

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, kostur ef á sviði mannauðsmála, lögfræði, sálfræði eða viðskiptagreina
  • Reynsla af mannauðsmálum
  • Áhugi á jafnréttismálum
  • Reynsla af vinnu með dvalar- og atvinnuleyfi er kostur
  • Þekking og hæfni við meðferð trúnaðarupplýsinga
  • Jákvæðni, þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að geta unnið sjálfstætt sem og í teymi
  • Frumkvæði, fagmennska og öguð vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri ([email protected]). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.

Advertisement published20. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Personnel administration
Professions
Job Tags