Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.
Eftirlit brunakerfa
Eftirlit brunakerfa
Við hjá Securitas erum að leita af kraftmiklum einstaklingi til þess að slást í teymið okkar. Ert þú tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni sem við kemur brunavörnum og öryggismálum?
Starfið snýr að úttekt á brunaviðvörunarkerfum fyrir viðskiptavini okkar með eftirliti og prófun kerfa.
Ef þú...
-
Hefur reynslu og/eða menntun í rafiðnaði (eða rafgreinum)
-
Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Hefur metnað og sýnir frumkvæði til þess að takast á við krefjandi verkefni
-
Býrð yfir íslenskukunnáttu, bæði rituðu og töluðu máli
...þá erum við að leita af þér!
Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00, stytting vinnuvikunnar á föstudögum.
Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með 20. október nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum er svarað.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Íris Guðnadóttir, deildarstjóri úttektardeild, í síma 580-7000.
Fríðindi í starfi
- Fatnaður og verkfæri
- Fimm stjörnu mötuneyti með matreiðslumeistara og matráði
- Við tryggjum að þú fáir þjálfun, símenntun og aðgang að þeirri þekkingu sem til þarf
- Öflugt starfsmannafélag
- Samgöngustyrkur
Advertisement published30. September 2024
Application deadline20. October 2024
Language skills
IcelandicIntermediate
Location
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
Driver's license (B)ProactiveHonestyClean criminal recordPositivityHuman relationsAmbitionElectronic technicsElectricianCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (5)
Similar jobs (12)
Ert þú frábær rafvirki og hefur áhuga á að slást í hópinn
Rafmiðlun
Starfsmaður í viðhaldsdeild á Dalvík
Samherji Dalvík
Sogsstöðvar, rekstur og viðhald aflstöðva
Landsvirkjun
Fageftirlit rafbúnaðar
Landsnet hf.
Tæknimaður,viðgerðir,þjónusta Elevator/Installer/Technician
Íslandslyftur ehf
Vélfræðingur
GEA Iceland ehf.
Austurland-Tæknistarf á ferðinni
Securitas
Rafvirki á Austurlandi
Landsnet hf.
Tæknileg þjónusta
Rafal ehf.
Rafvirkjar og rafveituvirkjar óskast
Rafal ehf.
Ábyrgðaraðili stjórnkerfa hjá Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Rafvirki í viðhaldsdeild / Electrician in maintenance depart
Sæplast Iceland ehf