Sólheimar ses.
Sólheimar ses.
Sólheimar ses.

Deildarstjóri yfir sjálfstæðri búsetu

Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra til starfa, í þjónustu við íbúa í sjálfstæðri búsetu.

Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu, en möguleiki á tilfallandi vöktum.

Í sjálfstæðri búsetu búa 24 fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir og stöðugildin 7.

Starfsfólk vinnur eftir þjónandi leiðsögn, hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu- og starfsáætlunum. Deildarstjóri vinnur í samræmi við lög og reglur í málefnum fatlaðra.

Deildarstjóri tekur þátt í að leiða uppbyggjandi starf í þessari þjónustueiningu og leggur sig fram við að skapa jákvæða og öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukinna lífsgæða fyrir íbúana.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja faglegt starf í samráði við forstöðumann Búsetusviðs
  • Daglegur rekstur þjónustueiningarinnar 
  • Kemur að starfsmannamálum og vaktaskýrslugerð í samvinnu við forstöðumann.
  • Leiðir innra starf á heimilum í samráði við forstöðumann
  • Ber ábyrgð á að framkvæmd þjónustunnar sé samkvæmt fyrirliggjandi þjónustuáætlunum og í samræmi við lög og reglur
  • Stuðlar að jákvæðum starfsanda og að starfsemin sé í anda gilda Sólheima
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýstist í starfi, s.s. þroskaþjálfanám eða félagsliðanám
  • Reynsla af vinnu með fötluðum einstaklingum nauðsynleg
  • Reynsla af umönnun mikilvæg
  • Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun æskileg
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reglusemi áskilin
  • Almenn góð tölvukunnátta nauðsynleg
  • Starfsmaður skal hafa hreint sakarvottorð
  • Bílpróf nauðsynlegt
  • Starfsmaður þarf að starfa í samræmi við gildi Sólheima
Fríðindi í starfi
  • Aðgangur að líkamsrækt og sundlaug, niðurgreiddur hádegisverður virka daga og möguleiki á hagstæðu húsnæði. 
Advertisement published29. June 2026
Application deadline12. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sólheimar 168279, 801 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags