Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Starfsmaður í frístundaklúbbinn Kópinn

Frístundaklúbburinn Kópurinn leitar að sjálfstæðum og skapandi einstaklingi með margvísleg áhugamál, reynslu og bakgrunn til að vinna í frístundaklúbbi fyrir nemendur á sérnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Markmið frístundaklúbbsins er að efla félagslegan þroska þátttakenda og stuðla að virkni ungmenna í frístundum.

Um er að ræða ca. 50% starf eftir hádegi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok ágúst.

Starfstöðin er í Félagsmiðstöðinni Zelsíuz, Austurvegi 2B.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í skipulagningu starfsins
  • Einstaklingsmiðuð þjónusta
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Upplýsingamiðlun
  • Samskipti og samstarf við starfsfólk, þátttakendur, foreldra, starfsfólk skóla og hinar ýmsu stofnanir sem tengjast starfseminni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með stuðningsþarfir er kostur
  • Nám sem nýtist í starfi kostur
  • Sjálfstæði í starfi
  • Frumkvæði og skipulagshæfni
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð skilyrði
Advertisement published3. July 2026
Application deadline14. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Austurvegur 2B, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags