NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir 

Only Icelandic-speaking applicants will be considered.

45 ára eða eldri bara ráðnar

Kona á einhverfurófi óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á heimili sínu. Starfið felur í sér félagsskap, stuðning og aðstoð við dagleg störf.

Um er að ræða persónulega aðstoð þar sem mikilvægt er að starfsfólk sé rólegt, áreiðanlegt og með góða hæfni í samskiptum. Starfið getur verið krefjandi og hentar best einstaklingum sem hafa mikla þolinmæði, skýra nærveru og geta haldið ró sinni í flóknum samskiptum.

Reynsla af starfi með einhverfu fólki er mikill kostur.

Sérstaklega er óskað eftir eldri aðstoðarkonum með lífsreynslu sem hafa þekkingu og ánægju af prjónaskap.

Vaktir í boði:

Öll mánudags, miðvikudags og fimmtudagskvöld.

Ein helgi í mánuði:

    • Föstudagur kl. 17:00–23:00
    • Laugardagur kl. 17:00–23:00
    • Sunnudagur kl. 20:30–23:30

Einn laugardagur í mánuði kl. 11:00–16:00

Einn sunnudagur í mánuði kl. 11:00–16:00

Hæfniskröfur og mikilvægar upplýsingar

Hundur er á heimilinu og þarf starfsfólk því að vera tilbúið til að aðstoða við umhirðu hundsins.

Æskilegt er að umsækjandi:

  • Hafi reynslu af starfi með einhverfu fólki eða öðrum störfum þar sem reynir á samskiptafærni,
  • Sé róleg, þolinmóð og lausnamiðuð,
  • Geti tekið leiðbeiningum og unnið samkvæmt skýrum ramma,
  • Sé stundvís, traust og ábyrg,
  • Sé vön hundum eða treysti sér vel til að vera á heimili þar sem hundur er til staðar.

Umsækjandi þarf að hafa bílpróf og aðgang að bíl.

Vegna ofnæmis má ekki koma með hnetur eða myntu inn á heimilið eða á vaktir. Um er að ræða hnetu- og myntuofnæmi.

Fólk sem reykir er ekki æskilegt. Heimilt er að veipa, nota nikótíntyggjó eða nota nikótín í vör, svo framarlega sem það hefur ekki áhrif á störf eða umhverfi á vakt.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • góð íslenskukunnátta
Advertisement published2. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags