Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Deildarstjóri framkvæmda og rekstrar á HVest Patreksfirði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga í starf deildarstjóra framkvæmda og rekstrar á Patreksfirði. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar, situr í rekstrarstjórn og tekur þátt í formlegu starfi deildarstjóra hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, framkvæmda og rekstrardeild, legudeild og endurhæfingu. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir og útdeilir verkefnum sem heyra undir deild framkvæmda og rekstrar

  • Leiðir áætlanagerð og stefnumótun fyrir deild framkvæmda og rekstrar í samstarfi framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar.

  • Stýrir rekstrarstjórn HVest á Patreksfirði, sem er formlegur stjórnunarvettvangur svæðis/deilda og stýrir fundum hennar.

  • Ber ábyrgð á að farið sé eftir lögum, reglum, kjarasamningum og öðrum þeim samningum sem gilda um rekstur HVest.

  • Tekur þátt í að samræma vinnulag og þjónustu milli starfsstöðva og stuðlar að samnýtingu og hagkvæmni í rekstri, m.a. með nýtingu mannafla og í innkaupum.

  • Innkaup og samskipti við birgja og flutningsaðila.

  • Er einn af lykilstarfsmönnum þegar almannavarnarástand ríkir. Sér um að upplýsingar um starfsmenn séu uppfærðar í almannavarnaráætlun og ber ábyrgð á kynningu hennar á deildum.

  • Samskipti við Framkvæmdasýsluna-Ríkiseignir og ýmis verkefni tengd fasteignum svæðisins.

  • Umsýsla varðandi leiguíbúðir og bifreiðar á vegum HVest á Patreksfirði.

  • Á sæti í rekstarstjórn HVest.

  • Umsjón með viðhaldsverkefnum á fasteignum og lóðaumsjón s.s. snjómokstur, sláttur o.fl.

  • Getur gengið í störf annarra starfsmanna deildarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla sem nýtist í starfi

  • Iðnmenntun kostur

  • Reynsla af mannaforráðum eða stjórnun æskileg

  • Góð íslenskukunnátta er kostur

  • Áhugi á umbótaverkefnum og teymisvinnu

  • Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði

  • Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Áhugi á þróun og uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Advertisement published2. July 2026
Application deadline17. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Stekkar 1, 450 Patreksfjörður
Type of work
Professions
Job Tags