
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Deildarstjóri
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með ungmennum? Barna- og fjölskyldustofa leitar að framsæknum leiðtoga í stöðu deildarstjóra á nýrri félagslegri bráðamóttöku ungmenna. Um er að ræða félagslega bráðamóttöku til að stöðva óæskilega eða skaðlega hegðun, hlúa að, og skapa barnavernd svigrúm til að leita lausna, samhliða neyðarvistun vegna gæsluvarðhalds eða afplánunar.
Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu. Starfsstöð er Fossaleyni 17, 112 Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á starfsemi og stjórnun deildar í samstarfi við forstöðumann.
- Halda utan um daglegt og faglegt starf.
- Samstarf við meðferðarteymi Barna- og fjölskyldustofu varðandi eftirfylgd.
- Ábyrgð á að framfylgja eftirfylgdaráætlun og hafa yfirsýn yfir stöðu skjólstæðinga.
- Samskipti við samstarfsaðila og forsjáraðila ungmenna.
- Stuðningur við starfsfólk, skipulag vakta og umsjón með tímaskráningarkerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- BA/BS próf sem nýtist í starfi.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi kostur.
- Reynsla af störfum með ungmennum með alvarlegan hegðunarvanda og/eða vímuefnavanda og fjölskyldum þeirra.
- Reynsla af stjórnun sem nýtist í starfi kostur.
- Reynsla af skipulagningu vaktavinnu og tímaskráningarkerfi kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.
- Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli.
Advertisement published11. December 2025
Application deadline30. December 2025
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (7)

Deildarstjóri - Leikskólinn Ársalir
Sveitarfélagið Skagafjörður

Teymisstjóri í barnavernd og farsældarþjónustu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Deildarstjóri í búsetukjarna Rökkvatjörn 3
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Þjóðgarðsvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Náttúruverndarstofnun

Deildarstjóri hag- og áætlunardeildar
Mosfellsbær

Deildarstjóri Rauða krossins í Eyjafirði
Rauði krossinn við Eyjafjörð

Deildarstjóri fræðslu- og frístundamála Fjallabyggðar
Fjallabyggð