Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf
Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf

Bókhald og skrifstofustarf (50-70% starfshlutfall)

Framkvæmdafélagið Arnarhvoll óskar eftir að ráða samviskusaman og talnaglöggan einstakling í fjölbreytt skrifstofustarf. Um 50-70% starfshlutfall er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skráning reikninga
  • Móttaka launaupplýsinga og undirbúningur launavinnslu
  • Gagnaöflun og reikningagerð
  • Afstemmingar og önnur fjölbreytt störf í samráði við stjórnendur
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun/reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Reynsla af dk bókhaldskerfi er kostur

Um Arnarhvol:Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. hóf starfsemi um mitt ár 2017. Arnarhvoll er alhliða verktakafyrirtæki sem vinnur að fjölbreyttum framkvæmdum og uppbyggingarverkefnum um allt land. Félagið ætlar sér að verða leiðandi á verktakamarkaði í framtíðinni og nýta til þess bestu tækni og framleiðsluaðferðir sem völ er á. Nánari upplýsingar má finna á www.arnarhvoll.is.Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2025 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Sigríður Sandholt ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511-1225.

Advertisement published28. March 2025
Application deadline11. April 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Höfðabakki 3, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags